Fimm hljómsveitir hóta að mæta ekki á þjóðhátíð
Fimm hljómsveitir, sem eiga að spila á �?jóðhátíð í Vestmannaeyjum, segja í sameiginlegri yfirlýsingu, að í ljósi orðræðu og verklags lögreglustjórans í Vestmannaeyjum undanfarna daga sjái þeir ekki annan kost í stöðunni en að draga sig út úr dagskrá �?jóðhátíðar í ár nema skýr stefnubreyting komi frá bæjaryfirvöldum.
�?etta kemur fram á R�?V þar sem segir einnig:
�??Kynferðisbrot eigi aldrei að þagga niður. Retro Stefson, �?lfur �?lfur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Sturla Atlas áttu allir að koma fram á �?jóðhátíð. �?eir segjast ekki geta gert það, sem flytjendur og listamenn, vitandi það að einhverjir úr áhorfendaskaranum verði fyrir kynferðisofbeldi ef að bæjaryfirvöld og lögreglustjórinn í Vestmanneyjum hafi ekki gert allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir það.
Yfirlýsing þeirra félaga er svohljóðandi: Okkur blöskra viðbrögð yfirvalda í Vestmanneyjum við háværum kröfum samfélagsins undanfarna daga. �?jóðhátíð í Vestmannaeyjum er frábær hátíð en kynferðisbrot á aldrei að þagga niður. �?jóðhátið, Vestmanneyingar og við öll eigum að úthýsa kynferðisofbeldi með öllum tiltækum ráðum. Í ljósi orðræðu og verklags lögreglustjórans í Vestmanneyjum undanfarna daga sem gengur þvert á þöggunarumræðuna sem hefur átt sér stað undanfarin ár í íslensku samfélagi, sjáum við okkur ekki annan kost í stöðunni en að draga okkur úr dagskrá �?jóðhátíðar í ár nema skýr stefnubreyting komi frá bæjaryfirvöldum og lögreglustjóra og það strax.
Við getum ekki, sem flytjendur og listamenn á þessari hátið, komið fram vitandi það að einhverjir úr áhorfendaskaranum verði fyrir kynferðisofbeldi ef að bæjaryfirvöld og lögreglustjórinn í Vestmanneyjum hafa ekki gert allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir það. Okkar krafa er sú að lögregluyfirvöld í Vestmanneyjum temji sér þau vinnubrögð sem Landsspítalinn og Stígamót telji vera æskilegust. Og þá tala ég fyrir hönd eftirfarandi hljómsveita: Retro Stefson, �?lfur �?lfur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Sturla Atlas.
Kær kveðja Strákarnir.

Nýjustu fréttir

„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.