Fjöldatakmarkanir fara í 50 manns og fleiri tilslakanir frá 10. maí
Fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns, sund- baðstaðir og líkamsræktarstöðva mega taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum og sviðslistum verður 75 í hverju hólfi eða á sviði og hámarksfjöldi gesta á sitjandi viðburðum fer úr 100 í 150 manns. Þá verður opnunartími veitingastaða lengdur um klukkustund. Einnig verða ýmsar tilslakanir gerðar á skólastarfi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar breytingar í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Þær taka gildi frá og með mánudeginum 10. maí og eiga að gilda í rúmar tvær vikur.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra kemur fram að ýmsar aðgerðir á landamærum sem gripið var til vegna hópsýkinga sem í upphafi voru raktar til ferðamanna á landamærum sem ekki héldu reglur um sóttkví og/eða einangrun hafi skilað árangri. Undanfarna daga hafi fá smit greinst á hverjum degi utan sóttkvíar. Því megi ætla að tekist hafi að ná utan um fyrrgreind hópsmit þótt ekki sé hægt að segja að veiran sem veldur COVID-19 hafi verið upprætt úr samfélaginu.

Breytingarnar sem taka gildi á mánudaginn eru eftirfarandi:

Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns. Börn fædd 2015 og síðar verði áfram undanþegin.

Nándarregla verði áfram almennt tveir metrar.

Grímuskylda og leiðbeiningar um grímunotkun óbreyttar. Börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu.

Sund- og baðstaðir, skíðasvæði, tjaldsvæði og söfn opin fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2015 og síðar teljist ekki með.

Líkamsræktarstöðvar opnar fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, en ekki fleiri en 50 manns í hverju rými. Önnur skilyrði óbreytt.

Íþróttir: Hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum 75 í stað 50 í hverju hólfi.

Sviðslistir: Hámarksfjöldi þátttakenda 75 í stað 50 í hverju hólfi/á sviði.

Sitjandi viðburðir: Hámarksfjöldi áhorfenda eða gesta á sitjandi viðburðum, s.s. íþróttakappleikjum, sviðslistum, athöfnum trúar- og lífskoðunarfélaga, verður 150 manns í hverju sóttvarnahólfi í stað 100. Önnur skilyrði óbreytt.

Verslanir: Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum 200 manns í stað 100.

Veitingastaðir: Opnunartími lengist um klukkustund, frá kl. 21 til kl. 22. Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 23.00.

Skólastarf

Hámarksfjöldi fullorðinna 50 í hverju rými.

Hámarksfjöldi barna/nemenda verður 100 í hverju rými.

Foreldrar og aðstandendur mega koma inn í skólanna.

Blöndun milli hópa barna innan skóla heimil í sundi og íþróttum í grunnskólum.

Viðburðir fyrir utanaðkomandi heimilaðir með þeim takmörkunum sem almennt gilda.

Blöndun nemenda milli hólfa einnig leyfð í háskólum.

Nýjustu fréttir

Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.