Fótboltamótið Rey Cup fór fram í Laugardalnum dagana 22. – 26. júlí. Rey Cup er alþjóðlegt fótboltamót sem er haldið ár hvert fyrir 4. og 3. flokk karla og kvenna.
ÍBV sendi þrjú lið til leiks í ár í 4. flokki karla, alls 36 stráka. Þar sem nokkrir strákar misstu af mótinu sökum þess að þeir voru erlendis var boðið nokkrum strákum úr 5. flokki með á mótið en það gerði þeim kleift að fara með þrjú lið á mótið og auka spiltíma allra til muna.
Rey Cup var þannig uppsett í ár að öll lið ÍBV voru í styrkleikum með sjö öðrum liðum en innan hvers styrkleika var liðunum skipt upp í tvo riðla. Riðlakeppnin fór fram á fimmtudegi og fyrri hluta föstudags en liðum ÍBV gekk virkilega vel í riðlakeppninni.
Lið 1 vann alla sína leiki, gegn FC Midtjylland, Þrótti 1 og Selfossi 1. Liðið skoraði níu mörk og fékk á sig fjögur í þeim leikjum. Lið 2 spilaði einnig virkilega vel en eftir erfiðan fyrsta leik vann liðið næstu tvo leikina í riðlinum gegn Tindastóli 2 og Selfossi 3. Það varð til þess að liðið endaði í öðru sæti riðilsins. Lið 3 vann alla sína leiki, gegn Fylki 3, Uppsveitum og Þrótti 6.
Að loknum riðlunum tóku við 8-liða úrslitin en þar brást bogalistin hjá liði 1 þar sem Austurland varð fyrsta liðið til að sigra þá og við tóku leikir um 5. – 8. sæti hjá liði 1. Strákarnir spiluðu vel og komust yfir gegn KA 1 í næsta leik en norðanmenn voru sterkari í seinni hálfleik og unnu eins marks sigur 2:1. Strákarnir enduðu mótið eins og þeir hófu það, með sigri á Midtjylland og að þessu sinni var það 4:1 sigur. Strákarnir unnu fjóra leiki og töpuðu tveimur. Einungis eitt lið á mótinu vann fleiri leiki og sama liðið var eina liðið sem tapaði færri leikjum. Það voru meistararnir frá Malaví, Ascent Soccer.
Í 8-liða úrslitunum tókst liði 2 að sigra KA 3 í hörkuleik 4:2 þar sem úrslitin réðust á lokamínútunum. Undanúrslitin fóru fram á laugardagsmorguninn en þar voru það leikmenn Sindra/Neista sem höfðu betur en þeir enduðu á því að vinna mótið. Strákarnir spiluðu virkilega góðan lokaleik gegn Austurlandi 2, þar sem þeir léku vel í erfiðum aðstæðum en töpuðu á endanum 4:3 og þurftu að sætta sig við fjórða sætið.
Lið 3 vann góðan 3:1 sigur á Selfossi 4 í leik sínum í 8-liða úrslitum, en strákarnir léku virkilega seint á föstudeginum. Í undanúrslitum spiluðu þeir við gott lið Tindastóls 2 en sá leikur fór alla leið í vítakeppni, þar sem strákarnir frá Sauðárkróki voru nákvæmari í sínum spyrnum. Strákanir í liði 3 enduðu einnig í fjórða sæti eftir tap gegn KF/Dalvík í lokaleik sínum á mótinu. Uppsveitir unnu mótið en ÍBV vann þá örugglega 1:3 á fyrsta degi mótsins.
Að sögn þjálfaranna, Guðmundar Tómasar Sigfússonar og Yngva Borþórssonar, spiluðu strákarnir virkilega vel á mótinu og lögðu sig vel fram. Þeir fengu að spila mikið í hverjum leik enda einungis einn varamaður hjá hverju liði og strákarnir höndluðu álagið sem fylgir því að spila mikið af leikjum á stuttum tíma með miklum glæsibrag.
