Fleiri hleðslustöðvar í burðarliðnum
Samstarfsverkefni er við Orku Náttúrunnar á uppbyggingu á hverfahleðslu sem er í samræmi við umhverfis- og auðlindastefnu Vestmannaeyjabæjar. Ljósmynd/aðsend

Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar fór yfir fyrirhugaðar uppbyggingar rafhleðslustöðva og samstarfs sumarið 2024, á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í byrjun vikunnar.

Vestmannaeyjabær hefur hlotið styrki fyrir uppsetningu hleðslustöðva við stofnanir bæjarins og ákveðna ferðamannastaði. Auk þess er til skoðunar að setja upp varanlegar hraðhleðslustöðvar. Lögð voru fram drög að forgangsröðun að uppsetningu hleðslustöðva.

Samstarfsverkefni er við Orku Náttúrunnar á uppbyggingu á hverfahleðslu sem er í samræmi við umhverfis- og auðlindastefnu Vestmannaeyjabæjar. Allir mögulegir og áhugasamir samstarfsaðilar eru hvattir til að senda inn fyrirspurnir/umsóknir.

Í niðurstöðu segir að ráðið þakki kynninguna og felur ráðið starfsfólki umhverfis- og framkvæmdasviðs framgang málsins.

Nýjustu fréttir

45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum
Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu
Ekkert gert í átta ár í Landeyjahöfn en nú er hlaupið til
Aldursmörk fyrir læknisvottorð hækka úr 65 í 75 ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.