Fleiri útskrifast af iðnbrautum
Útskriftarnemar FÍV á haustönn.

Framhaldsskólanum var slitið í gær og útskrifuðust þrettán nemar á haustönn, fimm af stúdentabrautum og átta af iðnbrautum. Thelma Björk Gísladóttir, aðstoðarskólastjóri fór yfir starfið á haustönn en um 280 nemendur voru skráðir til náms á 11 mismunandi brautum og 82 áfangar kenndir. „Iðn- og verkmenntaskólar hér á landi fóru í átak haustið 2017 með það að markmiði að fjölga fagmenntuðu fólki og fá 20% grunnskólanema til að velja iðn- og starfsnám árið 2025 og 30% árið 2030. Þessi vinna hefur skilað sér vel fyrir okkar skóla. Ef við rennum hratt yfir innritunartölurnar þá sóttu tæplega 59% umsækjenda á haustönninni um iðn- og verknám. 36% nemenda fæddir 2008, s.s. þau sem voru að komu beint úr grunnskólanum, sóttu um í iðn- og verknámi eða 21 nemandi af 59. Markmið skólanna fyrir árið 2030 var slegið og gott betur en það,“ sagði Thelma Björk.

Oktawia Piwowarska flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og Bergvin Haraldsson frá ÍBV – Íþróttafélag veitti barmmerki félagsins þeim sem klárað hafa fjórar annir eða fleiri í akademíu ÍBV og FÍV. Þeir voru  Adam Smári  og Ívar Bessi Viðarsson. Skólinn veitti Oktawiu Piwowarska og Róbert Elí Ingólfssyni viðurkenningu fyrir góðan heildarárangur í námi.

Að lokum ávarpaði Helga Kristín Kolbeins, skólameistari nemendur og þakkaði þeim samveruna í gegnum árin áður en hún sleit skólanum.

Útskriftarnemar á haustönn

Adam Smári Sigfússon – Stúdentsbraut

Aníta Marý Kristmannsdóttir – Stúdentsbraut

Anton Már Óðinsson –   Pípulagnir

Arnar Freyr Önnuson – Pípulagnir

Daníel Andri Kristinsson – Vélstjórn

Guðmundur Jón Magnússon – Pípulagnir

Ísak Huginn Héðinsson – Viðbótarnám til stúdentsprófs

Ívar Bessi Viðarsson – Stúdentsbraut-félagsvísindalína

Jökull Orri Gylfason – Pípulagnir

Katrín Lára Karlsdóttir – Sjúkraliðabraut og viðbótarnám til stúdentsprófs

Oktawia Piwowarska – Stúdentsbraut-félagsvísindalína

Róbert Elí Ingólfsson – Stúdentsbraut

Sigursteinn Marinósson – Viðbótarnám til stúdentsprófs

 

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.