Flóa- og Skeiðamannaafréttur fallegasti staður landsins


Fæðingardagur
: 1. febrúar 1986.

Fjölskylduhagir: �?gift og barnlaus.

Foreldrar: Steinþór Guðmundsson og �?uríður Einarsdóttir, bændur, eru fósturforeldrar mínir. Blóðforeldar eru Helga Tryggvadóttir og Hróbjartur Gunnarsson.

Systkini: Árni Steinn 15 ára, Kristrún 12 ára, Elín Inga 6 ára.

Heimili: Oddgeirshólar í Flóahreppi.


Skólaganga: Er að ljúka námi á félagsfræðibraut við Fjölbrautaskóla Suðurlands.


Helstu áhugamál: Hestamennska, þá aðallega hrossarækt og einnig listir, saga og menning landsins.

Uppáhaldsstaður á Íslandi: Flóa- og Skeiðamannaafréttur, og staðir með sögu eins og t.d. �?ingvellir.

En erlendis:
�?tli það sé ekki Nýja �? Sjáland, þó ég hafi aldrei komið þangað, langar það alla vega. Ímynda mér að þar séu fjöllin blá og grasið grænt.


Hvaða hlutar í eigu þinni gætir þú síst verið án:
Er sjálfri mér næg

Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á: Ef Steingrímur J. Sigfússon væri íþróttamaður þá héldi ég með honum. Annars eru það hestaíþróttafólk eins og �?órarinn Eymunds, Hulda Gústafs, Siggi Sig og fleiri. Fylgist lítið með öðrum íþróttum.


Uppáhalds listamaður: Móðir náttúra og Halldór Laxness.


Uppáhalds bók
: Margar í uppáhaldi, í augnablikinu Perlur í skáldskap Laxness, annars Íslandsklukkan og Sjálfstætt fólk. Svo ratar litir og erfðir íslenska hestsins alltaf reglulega á eldhúsborðið.


Uppáhalds sjónvarpsþáttur
: Horfi voða lítið á sjónvarp


Á hvað trúir þú
: Guð sem kærleika, góða orku í náttúrunni og orkan í góðri hugsun.


Hvað er best og hvað er verst í fari þínu:
Besta að vera ekki með neina flóamennsku hér og segja það að ég er nokkuð vel upp alin og er yfirleitt kurteis. En það versta er líklega óþolinmæði og fljótfærni.


En í fari annarra:
Best er heiðarleiki og þegar fólk er sjálfum sér samkvæmt en verst þykir mér dónaskapur og óþarfa afskiptasemi.


Ef þú þyrftir að syngja í
Kareókí hvaða lag mundir þú velja? Söngurinn minn hljómar eins og stunginn grís. En ef ég neyddist til, þá myndi ég synga eitthvað hresst með Hemma Gunn bara.


Hvað hræðistu eða veldur þér mestum kvíða: Að það komi eitthvað fyrir mína nánustu.


Eftirminnilegasta atvik í lífinu:
�?egar systkini mín fæddust.


Eftirminnilegast úr æsku: �?egar frændi minn var hætt komin þegar hann datt niðrum ís fyrir vestan bæinn þegar við vorum smá krakkar, og ég hljóp heim eins og brennt svín að ná í hjálp og tilkynnti mömmu hans að tröllin væru að taka hann.


Af hverju tekurðu þátt í fegurðarsamkeppni:
Af því það er skemmtileg lífsreynsla.


Ef ekki í samtímanum, hvenær hefðir þú helst viljað vera uppi: Væri til í að hafa verið uppi og búið á Eyrarbakka þegar hann i var í blóma og aðal verslunarmiðstöðin. Eða þegar landnámsmennirnir voru að setjast hér að og sjá landið allt óbyggt og/eða þegar afi minn aftur í nokkra ættliði Egill Skalla-Grímsson var uppá sitt besta.


Lífsmottó: �?ú ert aldrei betri en fólkið í kringum þig.

Nýjustu fréttir

Kjósum með framtíðina í huga
Kona fer í framboð
Kjósum með hjartanu!
Þrjú framboð takast á um níu sæti í bæjarstjórn
Saman gerum við góðan bæ enn betri
Hundruð hafa þegar kosið utan kjörfundar í Eyjum
Líflegur lokasprettur í baráttunni – myndir
Þungavigtarfólk byggði upp Vestmannaeyjar
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.