„Förum út þegar vindur gengur niður”
bergur_vestmannaey_0523
Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE í heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Ísfisktogarinn Bergur VE kom til Neskaupstaðar sl. nótt með 65 tonna afla. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að veður hafi verið gott í túrnum þar til í blárestina. „Aflinn er mest ýsa og þorskur og hann fékkst allur á Tangaflakinu. Það var komið leiðindaveður í gær og á að vera verra í dag samkvæmt spá. Við förum út þegar vindur gengur niður,” segir Jón.

Systurskipið Vestmannaey VE kom til Neskaupstaðar í kjölfar Bergs og landar þar í dag. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri segir að túrinn hafi verið stuttur og aflinn sé um 45 tonn, mest ýsa. “Við vorum að veiðum á Glettinganesflaki, Gerpisflaki og á Skrúðsgrunni og það var rólegheitakropp allan tímann. Við höldum til veiða á ný í nótt þegar lægir,” segir Birgir Þór í samtali við vefsíðu Síldarvinnslunnar.

Nýjustu fréttir

Boranir hefjast í apríl
Fjölbreytt efni í nýju tölublaði Eyjafrétta
Opið hús og kertalýsing – myndir
Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.