Árlegar inflúensubólusetninga
Í þessari viku er haldið áfram bólusetningum fyrir forgangsgópa og er opinn tími á morgun, 9 nóvember, frá kl 13:30 – 15:00 á heilsugæslunni.
Í næstu viku verður opnað yfir fólk utan áhættuhópa og verður opinn tími þriðjudaginn 16 nóvember frá kl 13:30 -15:00 og svo framvegis á fimmtudögum kl 14:00 – 14:30 meðan birgðir endast.
Athugið að minnsta kosti 2 vikur verða að vera milli inflúensu og covid bólusetningar
Covid bólusetning
Miðvikudaginn 10 nóvember getur fólk sem ekki hefur fengið neina bólusetningu, þar með talið þeir sem fengu covid. Þeir sem einungis hafa fengið eina bólusetningu með pfizer eða Astra Zenica skráð sig í bólusetningu á heilsugæslunni, sími 4322500.
Viljum einnig hvetja heilbrigðisstarfsfólk og starfsmenn lögreglu og sjúkraflutninga sem ekki hafa fengið bólusetningu 3 til að skrá sig.
Miðvikudaginn 17 nóvember verður bólusett í Íþróttahúsinu fyrir þá sem eru 60 + og fólk í ákveðnum áhættuhópum sem komnir eru á tíma. 6 mánuðir eiga að líða milli 2 og 3 skammtas af covid bólusetningum.
Fólk mun fá boð í síma og strikamerki. Ef þú ert 60 + , liðnir 6 mánuðir og þú færð ekki boð er þer velkomið að mæta í Íþróttahúsið kl 13 miðvikudaginn 17 nóvember og sama á við um þá sem af einhverjum ástæðum eru með enga eða 1 bólusetningu.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.