Framúrskarandi fyrirtæki í sjávarútvegi heiðruð
18. september, 2024
Icefish 24
Frá afhendingu verðlaunana.

Íslensku sjávarútvegsverðlaunin, með stuðningi matvælaráðuneytisins og Kópavogsbæjar, voru veitt í gærkvöldi í níunda skipti, að loknum fyrsta degi IceFish 2024. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1999.  Verðlaunin heiðra framúrskarandi árangur í íslenskum og alþjóðlegum sjávarútvegi, með sérstakri áherslu á nýsköpun og byltingarkenndar vörur, ásamt því að verðlauna framúrskarandi þjónustu.

Viðburðurinn að þessu sinni hófst með að merkum tímamótum var fagnað, þ.e. 40 ótrúlegum árum frá því að fyrsta sýningin var haldin í Laugardalshöll árið 1984. Vegferð IceFish hefur síðan þá einkennst af nýsköpun og góðri samvinnu við sýnendur og gesti. Sérstök viðurkenning var veitt öllum tryggustu sýnendum IceFish frá upphafi, en það eru fyrirtækin Atlas, Baader, Borgarplast, Friðrik A. Jónsson ehf. Marel, Danish Export Association. Eimskip, Fiskifréttir, Hampiðjan, Olís, Héðinn, Sæplast, Slippurinn, DNG, Style Technology og Scanmar.

Dómnefnd undir forystu Jason Holland, ritstjóra World Fishing & Aquaculture, valdi vinningshafa. Færeyska fyrirtækið Vonin er styrktaraðili verðlaunanna. Verðlaunaafhendingin fór fram í Salnum, Kópavogi, undir stjórn Gísla Marteins Baldurssonar, sjónvarpsmanns, að því er segir í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar.

Vinningshafar níundu Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna eru eftirfarandi:

Besti nýi varan sem var kynnt á sýningunni:

Hampiðjan hf

Besti einstaki bás undir 50 m²:

Raftákn ehf

Besti einstaki bás yfir 50 m²:

TM

Besti þjóðar-, svæðis- eða hópbás:

Pavilion of Denmark

Framúrskarandi íslenskur skipstjóri:

Eiríkur Sigurðsson, skipstjóri á Reval Viking

Framúrskarandi árangur á Íslandi:

Einhamar, Grindavík

Verðlaun fyrir birgja/framfarir í vinnslu – alþjóðleg og íslensk:

Framúrskarandi vinnslufyrirtæki í Evrópu:

Íslenskt sjávarfang ehf

Skilvirkni í sjávarútvegi og fiskeldi, fyrirtæki með undir 50 starfsmenn:

GreenFish

Skilvirkni í sjávarútvegi og fiskeldi, fyrirtæki með yfir 50 starfsmenn:

Brunvoll AS

Verðmætasköpun í vinnslugeiranum, fyrirtæki með undir 50 starfsmenn

Klaki Tech

Verðmætasköpun í vinnslugeiranum, fyrirtæki með yfir 50 starfsmenn:

Marel

Snjallverðlaun fyrir nýsköpun í vinnslu úr aukaafurðum:

Ace Aquatec

Framúrskarandi alhliða birgir:

Samherji

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst