Frumvarp til laga um skip í samráðsgátt

Drög að frumvarpi til laga um skip hafa verið birt á samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 4. mars 2020. Frumvarpinu er ætlað að einfalda löggjöf í kringum skip.

Markmið laganna er að tryggja öryggi íslenskra skipa, áhafna þeirra og farþega, efla varnir gegn mengun frá skipum og tryggja skilvirka skráningu, merkingu, mælingu og eftirlit með skipum. Þá er þeim ætlað að veita stjórnvöldum nægilegar heimildir til að innleiða þær kröfur sem leiða af skuldbindingum samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum Íslands á sviði sjóréttar er lúta að skipum. Verði frumvarpið að lögum er lagt til að það taki gildi 1. janúar 2022.

Í kynningu á frumvarpinu á samráðsgátt segir að í dag séu í gildi fjölmargir lagabálkar sem gilda um skip. Má þar nefna lög um einkenning fiskiskipa, nr. 31/1925, lög um skráningu skipa, nr. 115/1985, lög um skipamælingar, nr. 146/2002, lög um eftirlit með skipum, nr. 47/2003, o.fl. Með þessu frumvarpi er lagt til að þessi lög verði sameinuð í einn lagabálk. Þá eru ákvæði laganna uppfærð og einfölduð þannig að meginreglur laga séu skýrar en ráðherra útfæri skilyrði nánar í reglugerðum.

Nýjustu fréttir

Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.