Gengið vel hjá Bergi og Vestmannaey

Gengið hefur vel hjá hjá Vestmannaeyjarskipunum Bergi VE og Vestmannaey VE að undanförnu. Þau hafa staldrað stutt við á miðunum og komið að landi með fullfermi. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra útgerðanna. “Segja má að þetta hafi gengið eins og í sögu og það er gjarnan landað fullfermi annan hvern dag. Skipin fóru til dæmis út eftir löndun sl. fimmtudag og þau komu til löndunar á laugardagsmorgun. Farið var út eftir löndunina þá og komið á ný til löndunar í morgun. Síðan er stefnt að löndun á ný á miðvikudag. Þetta gengur svona fyrir sig og það eru allir glaðir. Veitt hefur verið í nágrenni Eyjanna, mest í Háfadýpi og á Pétursey. Aflinn á laugardag var mest ýsa og þorskur en í dag eru skipin með ýsu, þorsk og ufsa. Við reynum að keyra á ýsu og ufsa eins og við getum en þorskurinn kemur alltaf með. Þetta er vertíðartími og þrusugangur í þessu,” segir Arnar.

Nýjustu fréttir

Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Fjölbreytt tómstundastarf kynnt í Íþróttamiðstöðinni
94 bjargdúfur felldar – aðgerðum ekki lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.