Gjaldfrjáls námsgögn og tvöfalt fjármagn til námsgagnagerðar
Mennta- og barnamálaráðherra ávarpar málþing ráðuneytisins um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna í febrúar.

Fjárframlag til námsgagnagerðar tvöfaldast og námsgögn verða gjaldfrjáls fyrir framhaldsskólanema fram að 18 ára aldri. Aðgerðirnar eru liður í heildarendurskoðun á útgáfu námsgagna og menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Nýtt frumvarp um námsgögn hefur verið samþykkt af ríkisstjórn til fyrirlagningar á Alþingi.

Ein af áherslum menntastefnu stjórnvalda er að í boði séu fjölbreytt námsgögn sem taka mið af möguleikum stafrænnar miðlunar og margbreytileika nemenda. Fyrirkomulag útgáfu námsgagna hefur sætt gagnrýni um hríð og þörfin á úrbótum brýn. Gott námsefni gegnir lykilhlutverki í að ná árangri í menntun. Aðgerðir sem nú eru að koma til framkvæmda marka mestu breytingar á útgáfu námsgagna í áraraðir.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, skipaði starfshóp um námsgögn í upphafi árs 2024. Starfshópnum var falið að greina áskoranir og tækifæri vegna fyrirhugaðrar lagasetningar um námsgögn sem ætlað væri að auka aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum fyrir öll skólastig. Starfshópurinn hefur skilað tillögum sínum til ráðherra og byggir nýtt frumvarp um námsgögn m.a. á vinnu hópsins.

Fréttatilkynning.

 

Nýjustu fréttir

Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.