Fimm ára útgáfusögu sunnlenska fréttablaðsins Gluggans er nú lokið, en síðasta eintak blaðsins kom út fyrir áramót. Öllum starfsmönnum hefur verið sagt upp.
Blaðið var fríblað og borið í hvert hús á Suðurlandi og hafði tekjur sínar af auglýsingum. Gerð var tilraun til að breyta því í áskriftarblað en það gekk ekki sem skyldi þar sem ekki náðist að safna nógu mörgum áskrifendum.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst