Góð síld sem fer öll til manneldis
�?egar gefur hafa veiðar á íslensku síldinni gengið vel en mynstrið er gjörbreytt því nú er öll síldin veidd í troll út af Vesturlandi en síðustu árin hefur hún haldið sig inni á Breiðafirði. Var oft erfitt að ná henni í nót inni á grynningum og í miklum straum. Í morgun voru um 6000 tonn komin á land í Vestmannaeyjum af rúmlega 20 þúsund tonna kvóta Eyjamanna. Síldin er í góðu ástandi og fer öll í vinnslu til manneldis.
�??Við erum komin með um 2000 tonn af þeim 8000 tonnum sem við eigum,�?? sagði Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar, í morgun. �??�?etta hefur gengið ágætlega en fer þó eftir veðri eins og gengur. Stóra breytingin er að nú er öll síldin veidd í troll en ekki nót eins og undanfarin ár. Eru bátarnir að veiðum út af Vesturlandi og er 16 til 18 tíma stím á miðin frá Eyjum. �?etta er fín síld, í góðum holdum og ástandi og öll unnin til manneldis. �?að hefur verið unnið á vöktum í vinnslunni en með einhverjum hléum þegar brælir,�?? sagði Sindri.
Páll Hjarðar, þjónustustjóri útgerðar hjá Ísfélaginu, lét líka vel af sér. �??Kvótinn okkar er tæp 11.000 tonn. �?að eru komin um 3000 tonn í land og eigum við þá eftir um 7500 tonn,�?? sagði Páll. �??Aflinn er eingöngu unninn í Vestmannaeyjum og fer allur til manneldis. �?eir eru ánægðir með hráefnið. �?að er unnið á vöktum en hefur slitnað út af brælum,�?? sagði Páll.
Huginn VE 55, sem vinnur aflann um borð, er með um 2000 tonna kvóta. �?eir lönduðu afla úr um 1000 tonnum í síðustu viku. �??�?ar með erum við hálfnaðir með kvótann. Síldin er ágæt og er flökuð um borð,�?? sagði Páll Guðmundsson, útgerðarstjóri Hugins.

Nýjustu fréttir

ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.