Góður fundur í Eyjum er veganesti inn í komandi þingvetur

Seinustu helgi varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að heimsækja Vestmannaeyjar ásamt forystu flokksins og stórum hluta þingflokksins. Þar funduðum við með því öfluga baklandi sem Sjálfstæðisflokkurinn á í Eyjum. Það var uppbyggjandi að upplifa þá bjartsýni sem ríkir meðal ykkar og þá ekki síður að sjá með eigin augum það stórvirki sem er að eiga sér stað í landeldi á nýja hrauninu, uppbygginguna í ferðaþjónustunni, sóknina í sjávarútveginum og svo margt annað sem tryggja mun velferð ykkar Eyjamanna til lengri og skemmri tíma.
Við þingflokkur Sjálfstæðiflokksins tókum sannarlega með okkur þær brýningar sem fram komu á góðum fundi. Við heyrðum ákallið um einföldun reglukerfis, traustar samgöngur, yfirvegun í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, aðhald í ríkisfjármálum, sanngirni í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og svo margt annað sem fram kom í samtölum okkar.
Nú er þing að hefjast eftir sumarleyfi. Þessi vetur mun verða krefjandi og engum dylst að reyna mun á samstarfið, bæði innan ríkisstjórnar og við flokka í stjórnarandstöðu. Verkefnin eru mörg og aðkallandi. Við þingmenn Sjálfstæðisflokksins höfum undirbúið okkur fyrir þetta með því að heimsækja kjósendur um allt land og funda með baklandinu. Af þeim fundum kemur veganesti okkar.
Hafið þakkir fyrir góðar móttökur og gott samtal.

Hildur Sverrisdóttir
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins

Nýjustu fréttir

Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.