Goslokahátíð 2016 | Berglind �?marsdóttir með tískusýningu í Eldheimum á morgun
Á morgun, föstudag mun Eyjakonan, Berglind �?marsdóttir halda sína þriðju tískusýningu í Eyjum í Eldheimum klukkan 18.00. Berglind hélt sína fyrstu sýningu árið 2008 þegar byrjað var að grafa upp húsin á safninu og svo aftur 2014 þegar safnið opnaði. Berglind, sem nýlega út­skrif­aðist sem kjóla- og klæðskera­meist­ari hélt glæsilega tískusýningu í Reykjavík fyrir stuttu síðan og mun hún sýna hluta af þeim fatnaði ásamt nýrri hönnun. Vörur Berglindar hafa verið til sölu í Gallery BKgler og verður hún þar eftir sýningu og um gosloka helgina.
�?ótt Berg­lind hafi verið að út­skrif­ast núna sem kjóla- og klæðskera­meist­ari er hún alls ekki ný­stig­in inn í tísku­heim­inn því hún hef­ur unnið sem hönnuður í fjölda­mörg ár og haldið tísku­sýn­ing­ar í Vest­manna­eyj­um og Lúx­em­borg þar sem hún bjó og starfaði í sjö ár.

Nýjustu fréttir

Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.