Greiðsluþátttaka við ferðakostnað innanlands eykst

Á heimasíðu Stjórnarráðsins kemur fram að Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur með breytingu á reglugerð um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innanlands aukið rétt þeirra til endurgreiðslu ferðakostnaðar. Hingað til hafa sjúkratryggingar tekið þátt í kostnaði við tvær ferðir á ári en með breytingunni fjölgar þeim í þrjár. Þetta á við um nauðsynlegar ferðir þar sem eru 20 km. eða lengra milli staða og þjónustan er ekki fyrir hendi í heimabyggð.

„Með þessari breytingu er stutt við það mikilvæga markmið að auka og jafna aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og búsetu“ segir Willum Þór Þórsson  heilbrigðisráðherra.

Þá voru einnig feld brott skilyrði um að læknir í heimabyggð sjúkratryggðs þyrfti að staðfesta að sú heilbrigðisþjónusta sem sjúkratryggður sækist eftir sé ekki í boði í heimabyggð viðkomandi. Eftir breytinguna þarf einungis staðfesting læknis, eða ljósmóður ef það á við, að liggja fyrir um að sjúkdómsmeðferðin sem um ræðir sé ekki veitt í heimabyggð viðkomandi.

Þátttaka sjúkratryggðra í ferðakostnaði er bundin við að sjúkratryggður þurfi að leita sér óhjákvæmilegrar sjúkdómsmeðferðar utan heimabyggðar á opinberum sjúkrastofnunum eða hjá öðrum aðilum heilbrigðis­kerfisins þar sem sjúkratryggingar taka þátt í kostnaði sjúkratryggðra. Undir þetta fellur einnig kostnaður við ferðir vegna tannlækninga og tannréttinga sem eru með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga.

Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar og öðlast gildi 1. janúar.

Nýjustu fréttir

Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  
Ráðið segir tafir sýna mikilvægi betri undirbúnings
Opnunarhátíð Sea Life – myndasyrpa
Ísfélagið á vörusýningu á Englandi
Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag
ÍBV sigraði Stjörnuna í Eyjum
Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum
Ræddu kvartanir og þjónustu við fulltrúa Terra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.