Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Veðurspá gerir ráð fyrir hvassviðri og mikilli öldu við Suðurland á þriðjudagsmorgun. Herjólfur mun taka ákvörðun klukkan 6 hvort gera þurfi breytingar á áætlun vegna aðstæðna. Skjáskot/gottvedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland sem gildir frá klukkan 6 til 14 á morgun, þriðjudag. Búast má við austan hvassviðri og mjög snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum sem geta haft áhrif á umferð um svæðið.

Veðurstofa Íslands varar við austan hvassviðri, 13–18 m/s, á Suðurlandi frá klukkan 6 til 14 á þriðjudag. Sérstaklega er bent á að undir Eyjafjöllum og í Mýrdal geti vindhviður orðið mjög snarp­ar og náð allt að 30 m/s.

Við þessar aðstæður geta skapast hættulegar aðstæður fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir hliðarvindi, svo sem húsbíla, hjólhýsi og önnur stór farartæki. Fólki sem hyggst ferðast um Suðurland í fyrramálið er ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám og ástandi vega áður en lagt er af stað.

Hugleiðingar veðurfræðings

Í hugleiðingum veðurfræðings frá því síðdegis í dag segir: Suðaustur af Hvarfi er lægð og úrkomubakki frá henni nálgast úr suðri. Suðaustan 5-15, hvassast með suðurströndinni. Rigning sunnanlands en bjartviðri norðan og austanlands.

Á morgun verður suðaustan og austan 5-13 m/s en 13-18 syðst. Víða rigning en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hiti 9 til 19 stig, hlýjast á Norðurlandi. Útlit er fyrir suðvestlæga átt með skúrum á miðvikudag en rigningu um vestanvert landið um kvöldið. Skúrir fimmtudag, einkum á vestanverðu landinu.

Ábending frá Herjólfi

Vegna veðurspárinnar hefur Herjólfur einnig sent frá sér tilkynningu til farþega. Þar kemur fram að spáð sé mikilli ölduhæð í Landeyjahöfn fyrri hluta dags sem geti haft áhrif á siglingaáætlun.

Farþegar eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingamiðlum Herjólfs ef breytingar verða á áætlun. Ákvörðun um hvort grípa þurfi til breytinga verður tekin klukkan 6 í fyrramálið.

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.