Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir flesta landshluta, þar á meðal Suðurland. Appelsínugul viðvörun er fyrir Breiðafjörð. Kort: Veðurstofa Íslands.

Veðurstofa Íslands hefur gefið út uppfærða gula viðvörun fyrir Suðurland vegna suðvestan hvassviðris á morgun, sunnudaginn 18. október. Viðvörunin gildir frá klukkan 14 til 21.

Spáð er suðvestanvindi, 15–23 metrum á sekúndu. Vindhviður geta farið yfir 30 metra á sekúndu við fjöll og verið varasamar fyrir ökutæki, sérstaklega þau sem eru viðkvæm fyrir vindi.

Veðurstofan varar jafnframt við því að lausamunir geti fokið. Þá má búast við talsverðri rigningu á svæðinu.

Hefst fyrr en áður var boðað

Í fyrri viðvörun fyrir allt landið var gert ráð fyrir að viðvörunartímabilið hæfist klukkan 15 á sunnudag og stæði til klukkan 1 aðfaranótt mánudags. Uppfærða viðvörunin fyrir Suðurland hefst klukkustund fyrr og lýkur klukkan 21 á sunnudagskvöld.

Fólk með ferðaplön er hvatt til að fylgjast með nýjustu veðurspám og tilkynningum samgönguaðila.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag:
Minnkandi suðvestanátt, 8-15 m/s síðdegis, hvassast norðvestantil. Rigning eða skúrir, en þurrt norðaustantil fram á kvöld. Hiti 4 til 10 stig.

Á þriðjudag:
Breytileg átt 3-8, en sunnan 8-13 austast. Rigning eða slydda, en smáskúrir eða slydduél vestantil. Hiti 0 til 7 stig, mildast austanlands.

Á miðvikudag:
Suðvestlæg átt 5-13. Víða slydda eða snjókoma á norðanverðu landinu, en bjart með köflum með stöku skúrum eða slydduéljum vestan- og sunnantil. Lengst af þurrt fyrir austan. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn, en um eða undir frostmarki inn til landsins.

Á fimmtudag:
Austlæg eða breytileg átt og víða rigning eða snjókoma með köflum. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:
Útlit fyrir austlæga átt með skúrum eða éljum. Hiti um eða yfir frostmarki.
Spá gerð: 17.10.2026 08:51. Gildir til: 24.10.2026 12:00.

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Erlingur hefur snúið gengi Minden við – þrír sigrar í röð
Telja að tilkynna megi um vernd 1,6% hafsvæða
ÍBV og Fram mætast í toppslag í Eyjum
Bikarævintýri ÍBV 2 heldur áfram gegn Þór í dag
ÍBV vann sex marka sigur á Þór
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.