Hæstiréttur hafnaði kröfu lögreglustjóra
Hæstirétt­ur Íslands staðfesti í gær úr­sk­urð Héraðsdóms Suður­lands um að maður­inn sem er grunaður um al­var­lega lík­ams­árás og kyn­ferðis­brot í Vest­manna­eyj­um í síðasta mánuði skuli ekki sæta gæslu­v­arðhaldi.
Málið var kært til Hæsta­rétt­ar 28. sept­em­ber síðastliðinn eft­ir að Héraðsdóm­ur Suður­lands hafði hafnað kröfu lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyj­um um að maður­inn skyldi sæta gæslu­v­arðhaldi til 26. októ­ber næst­kom­andi.
Maður­inn var hand­tek­inn laug­ar­dag­inn 17. sept­em­ber, grunaður um að hafa brotið gegn konu á fimm­tugs­aldri um nótt­ina. Hún var flutt með sjúkra­flugi til Reykja­vík­ur um morg­un­inn eft­ir að hafa fund­ist nak­in með mikla áverka í and­liti við hlið fata sinna og leik­ur grun­ur á að brotið hafi verið gegn henni kyn­ferðis­lega.

Nýjustu fréttir

Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum
Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu
Ekkert gert í átta ár í Landeyjahöfn en nú er hlaupið til
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.