Haldið til veiða eftir veðurofsann
7. febrúar, 2025
Bergur_vestmannaey_naer_24_IMG_4466
Vestmannaey VE og Bergur VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarar í Síldarvinnslusamstæðunni eru um þessar mundir að halda til veiða að loknum þeim veðurofsa sem ríkt hefur síðustu dagana. Togararnir hafa legið í höfn í um það bil vikutíma. Frá þessu er greint í frétt á vefsíðu Síldarvinnslunnar.

Gullver NS hélt til veiða frá Seyðisfirði í gærkvöldi. Þórhallur Jónsson skipstjóri sagðist vera ósköp feginn að geta hafið störf á ný. „Við ætluðum út á mánudagskvöld en spáin fyrir næstu daga gerði það að verkum að hætt var við það,” sagði Þórhallur.

Vísistogarinn Jóhanna Gísladóttir GK lét úr höfn í Hafnarfirði í morgun. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri sagði að legið hefði verið í Hafnarfjarðarhöfn í heila viku. „Það er kominn tími til að halda til veiða. Það er mikil ölduhæð ennþá og sjólag er alls ekki gott þannig að þetta verður örugglega bölvaður skælingur til að byrja með. Það er eins gott að eitthvað fiskist,” sagði Einar Ólafur.

Fyrstur kemur fyrstur fær

Vetmannaey VE hélt til veiða frá Vestmannaeyjum síðdegis í gær. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri mat aðstæður áður en lagt var frá bryggju. „Það er dottið niður í 20 metra og það er ennþá haugasjór en mér sýnist vera um 200 metrar á milli öldutoppa. Það þýðir ekkert annað en að drífa sig út þó það verði töluverður veltingur. Staðreyndin er einfaldlega sú að fyrstur kemur fyrstur fær,” sagði Birgir Þór.

Bergur VE mun væntanlega láta úr höfn frá Eyjum um þrjúleytið í dag. Ragnar Waage Pálmason skipstjóri sagði að veðurfar eins og ríkt hefur síðustu dagana ætti ekki að koma neinum á óvart. „Menn þurfa að vera viðbúnir því að veður eins og þetta trufli veiðar á þessum árstíma því það er nú einu sinni vetur. En það eru allir ánægðir þegar haldið er til veiða á ný,” sagði Ragnar.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.