Hámarksafli íslenskra skipa 139.205 tonn
Á loðnumiðunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Hámarksafli íslenskra skipa á loðnuvertíðinni framundan er 139.205 tonn, en þar af eru 7.378 dregin frá til atvinnu- og byggðaráðstafana, þannig að úthlutun ársins er 131.827 tonn. Þetta kemur fram í reglugerð um loðnuveiðar íslenskra skipa sem matvælaráðuneytið birti í lok október.

Sem fyrr er úthlutunin byggð á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar sem lagði til að loðnuafli ársins verði ekki meiri en 218.400 tonn. Mismunurinn, tæp 80 þúsund tonn, kemur í hlut annarra þjóða sem samið hafa um sinn hlut.

Stærstur hluti íslenska kvótans, samtals tæp 60 þúsund tonn, kemur í hlut fimm skipa. Heimaey VE, Venus NS og Vilhelm Þorsteinsson EA fá rúm 12 þúsund tonn hvert, og Börkur NK og Beitir NK fá rúm 10.500 tonn hvort.

Reikna má með því að veiðiheimildirnar annað hvort aukist eða minnki að lokinni loðnuleit í janúar, þegar endanleg ráðgjöf liggur fyrir frá Hafrannsóknastofnun.

Nýjustu fréttir

Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.