Harður árekstur pallbíls og fólksbíls
Í kvöld varð harður árekstur á gatnamótum Faxastígs og Heiðarvegs. Litlum fólksbíl var ekið yfir gatnamót, í veg fyrir pallbílinn, sem var á leið norður Heiðarveg og lenti pallbíllinn í hlið fólksbílsins. Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað á staðinn en beita þurfti klippum til að ná ökumanni fólksbílsins út og félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja aðstoðuðu einnig á vettvangi. �?kumaðurinn var þó ekki klemmdur fastur en hlið bílsins var það illa farin að ekki tókst að opna hann ökumannsmegin. Tvær stúlkur voru í fólksbílnum og voru báðar fluttar á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja til skoðunar en ekki er vitað hvers eðlis meiðsli þeirra eru. Fólksbíllinn er ónýtur en pallbíllinn er lítið skemmdur. �?kumann pallbílsins sakaði ekki en hann var einn í bílnum.
Uppfært:
Stúlkurnar tvær fengu að fara heim að lokinni skoðun á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og sluppu lítið meiddar úr þessum harða árekstri.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.