Haustmæling á loðnustofninum hafin
Vsv Lodna3
Markmið leiðangursins er að meta magn bæði ókynþroska og kynþroska loðnu á svæðinu milli Íslands, Austur-Grænlands og Jan Mayen.

Haustmæling Hafrannsóknastofnunar og Náttúruauðlindastofnunar Grænlands á loðnustofninum munu standa yfir frá 23. ágúst til 22. september. Grænlenska rannsóknaskipið Tarajoq fór af stað nú um helgina og byrjar syðst á rannsóknasvæðinu (mynd 1). Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun svo koma inn í mælinguna 6. september. Áætlað er að verkefnið á Tarajoq taki 21 dag og verkefni Árna Friðrikssonar 17 daga. Alls munu skipin sigla um 7.850 sjómílur, að því er segir í frétt á vef Hafrannsóknastofnunnar.  Hér má sjá staðsetningu rannsóknarskipanna tveggja á hverjum tíma.

Tilgangur leiðangursins

Markmið leiðangursins er að meta magn bæði ókynþroska og kynþroska loðnu á svæðinu milli Íslands, Austur-Grænlands og Jan Mayen. Sambærileg rannsókn hefur verið framkvæmd allt frá árinu 1978. Frá árinu 2018 hefur leiðangurinn beinst í auknum mæli að rannsóknum á vistkerfi uppsjávar á svæðinu, til viðbótar við loðnumælingarnar.

Í leiðangrinum er því safnað sýnum og gögnum um plöntusvif, dýrasvif, uppsjávarfisktegundir og umhverfiaðstæður, m.a. hita, seltu og strauma. Í ár hefur Hafrannsóknastofnunin aukið framlag til vistkerfisrannsóknanna með þátttöku fjögra hvalatalningarmanna, tveimur á hverju skipi. Hægt er að fylgjast með talningum á hvölum hér.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður loðnumælinganna mun liggja fyrir kringum miðjan október og þá mun Hafrannsóknastofnun senda frá sér endurskoðaða ráðgjöf um veiðar fyrir komandi fiskveiðiári (2025/2026).

Mynd 1. Fyrirhugaðar leiðarlínur rannsóknaskipanna Tarajoq (rauð lína) og Árna Friðrikssonar (blá lína) við loðnumælingar haustið 2025. Sýnatökustöðvar með mismunandi búnaði fyrir vistkerfisrannsóknir eru sýndar sem punktar.

Nýjustu fréttir

Morgunferð Herjólfs á föstudag fellur niður
Nýtt útisvið rís á Vigtartorgi
Samúðarkveðjur úr Eyjum vegna sjóslyssins
Ennisrakaðir halda útgáfutónleika í Alþýðuhúsinu
Siglingar Herjólfs falla niður síðdegis
Eyjarnar lönduðu í Neskaupstað eftir veiðar í brælu
Skráning í The Puffin Run 2027 opnar í dag
Kjörnir fulltrúar þurfa að axla ábyrgð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.