Stór skref hafa verið stigin í ljósleiðaravæðingu Vestmannaeyja undanfarin misseri og lokaskrefið var stigið þegar Míla tók yfir rekstur ljósleiðarakerfis Eyglóar haustið 2025. Við settumst niður með Héðni Þorsteinssyni til að ræða árangurinn, samþættingu kerfanna og hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir Eyjamenn.
„Þetta hefur verið skemmtilegt verkefni að vinna fyrir Eyjamann eins og mig,“ segir Héðinn þegar hann er spurður um kaup Mílu á kerfi Eyglóar. „Þegar við tókum við 1. september 2025 var ljóst að ákveðnir áfangar voru eftir, sérstaklega svæði norðan Hásteinsvegar. Við fórum strax af stað meðal annars í samstarfi við heimamenn, Geisla og HS Vélaverk, til að klára þær heimtaugar sem ekki voru tilbúnar.“
Ljósleiðaravæðing langt á veg komin
Hann segir að þessi samvinna hafi skipt sköpum. „Það er alltaf lykilatriði að vinna með öflugum aðilum á staðnum sem þekkja aðstæður. Við náðum að klára stóran hluta þessarar vinnu fyrir febrúar 2026, og síðustu vikur höfum við verið að leggja lokahönd á verkefnið.“
Að sögn Héðins er ljósleiðaravæðingin nú komin á lokasprett. „Við erum að klára síðustu húsin þessa dagana. Það þýðir að innan skamms verður nánast allt samfélagið komið með aðgang að ljósleiðara, sem er gríðarlegt framfaraskref.“ Hann bendir á að þegar þessu lýkur skapist ný staða í fjarskiptum í Eyjum. „Þá erum við komin með innviði sem gera okkur kleift að leggja niður koparkerfið, sem hefur þjónað Eyjamönnum vel í áratugi en er einfaldlega komið til ára sinna.“
Samkvæmt áætlunum verður koparkerfið brátt hluti af fortíðinni. „Við gerum ráð fyrir að slökkt verði á síðustu tengingunum seint á þessu ári. Það er mikilvægt að fólk átti sig á því að þetta er eðlileg þróun – við erum að færa okkur yfir í betri og framtíðarhæfari tækni.“ En hvernig hefur móttakan verið meðal íbúa? „Hún hefur verið mjög góð,“ segir Héðinn. „Um 75% heimila eru nú þegar tengd ljósleiðara og aðeins um 130 kopartengingar eru enn í notkun. Það sýnir að fólk sér ávinninginn.“
Uppsetning er nú innifalin
Hann leggur áherslu á að breytingin sé einföld fyrir notendur. „Það kostar ekkert að virkja ljósleiðarann hjá Mílu. Þegar fólk pantar þjónustu kemur starfsmaður frá Geisla og sér um uppsetningu og tengingar inni á heimilinu, án kostnaðar. Þar að auki rukka flest fjarskiptafyrirtæki sama verð fyrir þjónustu á kopar og ljósleiðara, þannig að reikningurinn hækkar ekki.“
Héðinn segir að til að fá sem besta upplifun þurfi að huga að búnaði inni á heimilum. „Ljósleiðari býður upp á miklu meiri hraða og stöðugleika, en til að nýta það þarf góðan netbeini og stundum Wi-Fi-magnara. Við hvetjum fólk til að fá ráðgjöf – starfsmenn Geisla geta aðstoðað við slíkt.“
Nýjasta kynslóð
Einn stærsti ávinningurinn felst í auknum hraða. „Við uppfærðum búnaðinn í Eyjum í nýjustu kynslóð fyrir rúmlega ári síðan, sem við köllum 10x. Það þýðir að íbúar geta nú fengið allt að 8,6 gígabita á sekúndu tengingu. Til samanburðar er það um 200 sinnum meiri hraði en á koparkerfinu.“ Hann segir þetta opna nýja möguleika fyrir samfélagið. „Þetta snýst ekki bara um hraðara Internet fyrir heimilin heldur líka um atvinnulíf, menntun og nýsköpun. Fyrirtæki geta starfað á allt annan hátt þegar tengingin er svona öflug og stöðug.“
Spurður um kaup Mílu á ljósleiðarakerfi Eyglóar og samtengingu kerfanna segir Héðinn að ferlið hafi gengið vel. „Við höfum í raun samþætt kerfin þannig að notendur finna ekki fyrir breytingunni nema í bættri þjónustu. Allir fjarskiptaaðilar geta áfram keypt þjónustu af Mílu, sem tryggir samkeppni og val fyrir neytendur.“ Hann bætir við að markmiðið hafi frá upphafi verið skýrt. „Við vildum tryggja að Eyjamenn fengju toppþjónustu og gæði á við það sem best gerist í heiminum. Nú erum við komin mjög nálægt því markmiði.“
Að lokum er Héðinn bjartsýnn á framtíðina. „Vestmannaeyjar eru nú með fjarskiptainnviði sem standast allar nútímakröfur og gott betur. Þetta er fjárfesting í framtíð samfélagsins – hvort sem það er fyrir heimili, fyrirtæki eða opinbera þjónustu.“
„Það má eiginlega segja að með þessari uppbyggingu séum við ekki bara að bæta tengingar, heldur styrkja grunninn að áframhaldandi þróun Eyjanna,“ segir hann að lokum.