Herjólfur III í prufusiglingu á miðvikudag
Herjólfur III. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Áhöfn mun sigla Herjólfi III í prufusiglingu næstkomandi miðvikudag. Er það liður í því að fá útgefið nýtt haffærniskírteini. Þetta kemur fram í svari G. Péturs Matthíassonar, forstöðumanns samskiptadeildar Vegagerðarinnar, við fyrirspurn Eyjafrétta. „Það fer áhöfn og siglir Herjólfi III hér á sundunum á miðvikudag sem er síðasti liður í því að fá útgefið nýtt haffærniskírteini,“ segir Pétur.

Hann segir ennfremur að engar ákvarðanir hafi verið teknar um framhaldið en það sé Herjólfur ohf. sem meti þörfina á því að fá skipið í siglingar.

Málið tengist meðal annars stöðunni í samgöngum þar sem Herjólfur IV er bilaður og mun sigla á annarri skrúfunni næstu vikurnar.

Staðan sýni mikilvægi þess að hafa varaskip tiltækt

Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir í samtali við Eyjafréttir að mikilvægt sé að hafa varaskip tiltækt við slíkar aðstæður.

„Á meðan Herjólfur IV gengur einungis á annarri skrúfunni er gott að hafa Herjólf III til taks í Eyjum,“ segir Ólafur.

Hann bendir þó á að ákvörðun um notkun skipsins sé ekki einföld. „Herjólfur ohf. er einungis með samning við Vegagerðina um rekstur Herjólfs IV og því þurfa fleiri að koma að borðinu þegar teknar eru ákvarðanir um framtíð Herjólfs III,“ segir hann.

Að hans mati sýnir staðan mikilvægi þess að hafa varaskip tiltækt. „Staðan í dag sýnir svart á hvítu að full þörf er á varaskipi í landinu til að grípa í ef ferjukostur ríkisins bilar eða þarf í viðhaldsstopp,“ segir Ólafur.

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.