Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
24 DSC 4724
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Herjólfur siglir fyrri ferð dagsins til Þorlákshafnar. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Ferðir kl. 08:15, 09:30, 12:00, 13:15, 14:30, 15:45 hafa verið felldar niður. Hvað varðar siglingar fyrir seinnipartinn í dag, verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00.

Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.

Til upplýsinga:
Í upphafi árs var prufað til reynslu að breyta siglingaáætlun Herjólfs þegar sigla þurfti til Þorlákshafnar með þeim hætti að ferð sem áætluð var kl. 17:00 frá Vestmannaeyjum var færð til 16:00 og ferð sem áætluð var kl. 20:45 frá Þorlákshöfn var færð til 19:45. Fyrri ferðir dagsins héldust óbreyttar. Mikil ánægja var með þessa ákvörðun meðal farþega okkar og hefur því verið tekin ákvörðun um að innleiða hana aftur frá og með deginum í dag, til og með 30.04.2025.

Ef sigla þarf til Þorlákshafnar er áætlun Herjólfs því sem hér segist :
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00 (Ferðir sem færast sjálfkrafa milli hafna eru 07:00 og 17:00)
Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45 (Ferðir sem færast sjálfkrafa milli hafna eru 10:45 og 20:45)

Strætó hefur verið upplýstur um þessa ákvörðun og fylgir vagn báðum ferðum.

Nýjustu fréttir

Horfa til úthafseldis vestur af Vestmannaeyjum
Loðnuvertíð í hámarki
Perlað fyrir Kraft í Höllinni
Dýpi í Landeyjahöfn ekki nægilegt nema við bestu aðstæður
Aðalfundadagur sjálfstæðisfélaganna í Eyjum
Herjólfur til Þorlákshafnar
ÍBV fær Aftureldingu í heimsókn
Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.