Herrakvöld fótboltans
Mynd/aðsend

Á morgun fimmtudaginn 30. apríl verður haldið hið árlega herrakvöld fótboltans í Golfskálanum.

Það verður einstök stemming á þessu kvöldi þar sem skemmtileg dagskrá verður í hávegum höfð.  Veislustjóri verður okkar ástsæli Bjarni Ólafur Guðmundsson.  Ræðumenn verða m.a. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Guðlaugur Þór Þórðarson.

Brynjar Níelsson átti ekki heimagengt þar sem eiginkonan gaf honum ekki bæjarleyfi.  Þannig hann sendir drenginn sinn Helga Brynjarsson sem er víst öflugur uppistandari með Herjólfi til Eyja og vonar að hann komist til Eyja í tíma.  Hann hugsar sér einnig gott til þess hvernig samgöngur eru til og frá Eyjum þannig að hann gæti e.t.v. verið laus við drenginn fram að goslokum.

Boðið verður upp á glæsilegt sjávarréttahlaðborð frá Einsa Kalda og Rikka Kokki. Aron Dagur trúbador mun síðan halda uppi stemmingunni fram á kvöld. Við hvetjum ykkur til að nálgast miða hið fyrsta þar sem síðustu tvö Herrakvöld voru uppseld.

Verð er 9.900 kr. og er hægt að panta miða á knattspyrna@ibv.is. Ef panta þarf borð hafið samband við Hlyn í síma 766-8134 (4-20 manna borð), segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

 

 

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Vinnslustöðin styrkir stöðu sína í Portúgal
Herjólfur aftur í fulla áætlun á morgun
Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.