Fréttablaðið.is greinir frá niðurstöðu könnunar sem Prósent framkvæmdi dagana 17. – 31. ágúst sl. þar sem kemur fram að helmingur fólks sé andvígur því að dýr séu geymd á bílaþilfari Herjólfs á meðan siglingum stendur.
Öryggi dýra var til umræðu í fjölmiðlum fyrir nokkru, og þá ekki síst í kjölfar þess að bílalyfta Herjólfs féll fyrir mistök á meðan siglingu stóð og skemmdust bílar í kjölfarið, Eyjafréttir greindu fyrst frá. Má teljast heppni að ekkert dýr var í bílunum sem urðu undir lyftunni.
Formaður Dýravinafélagsins í Vestmannaeyjum hefur greint frá því í samtali við Vísi.is að dýr hafi dáið vegna álags og kvíða eftir veru á bílaþilfari ferjunnar.
Í könnuninni var eftirfarandi spurning lögð fyrir fólk:
Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur)(t) ertu því að gæludýr séu geymd niður á bílaþilfari ferjunnar Herjólfs?
48 prósent svarenda voru andvíg, 17 prósent voru hlynnt því að geyma gæludýr á bílaþilfari og rúmlega þriðjungur, eða 35 prósent, tók ekki afstöðu.
Nú kemur fram á heimasíðu Herjólfs að gæludýr séu velkomin um borð, á bíladekki – ýmist í bíl eiganda eða búri. Einnig sé heimilt að taka dýr um borð til að fara með þau beint út á útisvæði, en ferðast skuli með dýrið um skipið í búri.
Þeir gæludýraeigendur sem hafa rætt málið við blaðamenn Eyjafrétta hafa þó bent á að erfitt, jafnvel ómögulegt sé að halda á búri sem sé 140×80 cm að stærð og 5kg að þyngd, með 30kg hund innanborðs.
Ljóst er að málinu er langt í frá lokið af hálfu dýravina í Vestmannaeyjum.
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst