Hneyksli í vali íþróttafréttamanna
Sigurður tekur undir þetta og segir mikla pólitík hafa spilað inn í. „Það er pottþétt. Arnar náði besta árangri þjálfara í Íslandssögunni. Hann vann alla titlana og kom okkur í undanúrslit í Evrópukeppni.

Í blaði Eyjafrétta sem kemur út í dag

„Inni í klefa datt allt í dúnalogn. Þannig vil ég hafa það, tökum á því og erum svo vinir,“ segir Sigurður um móralinn í liðinu og þann árangur sem þeir náðu. Í kjölfarið varð mesta hneyksli frá upphafi í vali íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins 2018. Þar var bæði gengið fram hjá karlaliði ÍBV og Arnari Péturssyni þjálfara. Fundu heldur Íslending sem þjálfaði í Svíþjóð og hefur lítið heyrst eða sést til síðan. Lið ársins voru golfarar sem unnu áhugamannamót á Englandi.

Meiri gat svívirðan ekki orðið og síðan hefur sá sem þetta skrifar ekki horft á útsendingu frá afhendingunni. Óskar öllum sem hafa fengið viðurkenningar til hamingju og þakkar þeim sem þó greiddu karlaliði ÍBV í handbolta og Arnari atkvæði. Hinir sitja uppi með skömmina og sýndu að góður árangur er ekki góður nema hann lendi á réttum stað.

Nánar í ítarlegu viðtali við Sigurð Bragson, leikmann, þjálfara í handbolta hjá ÍBV og trillukarl.

Mynd Sigfús Gunnar.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.