Húkkaraballið fór vel fram
Húkkaraballið fór vel fram í gær en góð aðsókn var á ballið. Páll �?skar sá um að halda uppi stuðinu og stóð ballið yfir til klukkan hálf fimm í morgun, enda var einmuna veðurblíða í nótt og í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru ballgestir upp til hópa prúðir og enginn fékk gistingu í fangageymslu, sem þykir óvanalegt. Hins vegar komu nokkur smávægileg fíkniefnamál til kasta lögreglunnar en engin er grunaður um að hafa ætlað að selja fíkniefni. Lögregla er með mikinn viðbúnað í Eyjum, m.a. tvo fíkniefnahunda og hefur lögreglan fengið mikinn liðsauka um helgina.

Nýjustu fréttir

Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.