Hvernig nesti fær þitt barn?
9. mars, 2022
Íris Róbertsdóttir

Í nýliðinni viku var haldin ráðstefnan “Læsi er lykill að menntun” og einnig málstofa á vegum nýstofnaðs Rannsóknarseturs Háskóla Íslands um menntun og hugarfar.

Læsi kemur okkur öllum við og er á ábyrgð okkar allra. Læsi er lykill að öllu námi. Það að geta lesið sér til gagns er undirstaða þess að geta tekið virkan þátt í lýðræðissamfélagi.

Leik- og grunnskólinn er það jöfnunartæki sem við höfum til að nesta alla nemendur út í lífið með jöfn tækifæri. Ég veit að það er keppikefli allra að börnin okkar nýti skólaárin sem best og fái bestu mögulegu menntun. En það er einhversstaðar pottur brotinn og við erum ekki að nesta alla nemendur jafn vel út í lifið eftir sína skólagöngu. Þar hallar sérstaklega á drengi. Við getum gert betur sem samfélag og læsi og lestur er ekki bara á ábyrgð foreldra og kennara. Þetta kemur okkur öllum við.

Það er frábært að finna þann mikla áhuga á læsi og skólamálum almennt sem er í samfélaginu. Ánægjulegt er að finna líka áhuga ráðamanna;  tveir ráðherrar og forseti Íslands tóku þátt í ráðstefnunni. Staða menntunar í víðu samhengi  er svo sannarlega á dagskrá, enda ein mikilvægasta undirstaðan í velmegun samfélagsins og velgengni einstaklinganna. Nú í aðdraganda sveitastjórnakosninga er mikilvægt að setja skólamálin raunverulega á dagskrá.

Á Íslandi höfum við einstakt tækfæri. Við erum með leikskóla sem gegna lykilhlutverki í grunnmenntun og svo tekur við 10 ára grunnskólaganga. Nánast öll börn eru í leikskóla frá eins til tveggja ára aldri þannig að við höfum a.m.k 14 ár til að jafna tækfærin og nesta öll börnin út í lífið með góða færni. Þetta tækifæri verðum við að nota vel. Hlúa að mannauðnum í skólasamfélaginu, leita leiða að nýrri nálgun í samvinnu og sátt, nemendum og okkur öllum til heilla.

Við þurfum að þora að fara nýjar leiðir og, já, það þarf að fylgja fjármagn.

”Kveikjum neistann” í Vestmannaeyjum

Fyrsta þróunar- og rannsóknarverkefnið, sem nýtt Rannsóknarsetur um menntun og hugarfar fer í, er verkefnið ”Kveikjum neistann” og fer fram í Grunnskóla Vestmannaeyja. Þetta er verkefni um að bæta árangur og líðan nemenda og er undir stjórn Hermundar Sigurmundssonar. Vestmannaeyjabær er þátttakandi í verkefninu bæði fjárhagslega og faglega. Skólasamfélagið okkar, starfsfólk á bæjarbókasafninu og fleira fagfólk er að vinna af áhuga og dugnaði að þessu verkefni. ”Kveikjum neistann” er að vekja verðskuldaða athygli enda gríðarlega spennandi fyrir margra hluta sakir. Það verður gaman að fylgjast með framhaldinu og ég efast ekki um að það mun hafa áhrif til góðs fyrir nemendur og skólasamfélagið allt.

Við viljum gera enn betur!

Í Vestmannaeyjum höfum við  undanfarin 3 ár lagt mikla áherslu á snemmtæka íhutun og fá leikskólar bæjarins fjármagn í því skyni sem er ekki tengt greiningum heldur hugsað til að grípa og aðstoða nemendur strax byggt á skimunum eða mati kennara. Það er mikilvægt því tíminn vinnur ekki með ungum nemendum í leikskóla sem þurfa að bíða eftir sérhæfðri aðstoð. Þetta er að skila sér í betri árangri og glaðari börnum!

Í Vestmannaeyjum tókum við líka ákvörðun um að tækjavæða grunnskólann og hefur það verkefni verið í gangi í tæp 3 ár og mun ljúka á næsta ári. Sérstakur verkefnastjóri er yfir  spjaldtölvuinnleiðingu Grunnskóla Vestmannaeyja sem skiptir miklu máli því það þarf að fylgja eftir slíkri innleiðingu. Markmiðið um eitt tæki á hvern nemanda náðist núna í febrúar. Framundan er skemmtilegt lærdómsferli í tækninni með sköpunargleði að leiðarljósi. Nemendur eru sammála því og sýnir könnun sem gerð var meðal nemenda að þeim gengur vel að tileinka sér tæknina í námi og verkefnin eru fjölbreyttari. Verið er að undirbúa nemendur fyrir „heim“ tækninnar.

Í Vestmannaeyjum er mikill kraftur og metnaður í öllu skólasamfélaginu. Stefnt er að því að verða í fremstu röð og vera óhrædd við að fara nýjar leiðir að því markmiði. Við viljum gera enn betur! En þetta er ekki hægt án alls þess mannauðs og áhuga sem er í skólunum; og hjá foreldrum og samfélaginu öllu sem hafa tekið höndum saman og sett öflugt skólastarf í forgang!

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst