Hvítur regnbogi
2. nóvember, 2024
Hvítur regnbogi. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Hann var all sérstakur regnboginn sem myndaðist fyrr í dag. Ljósmyndari Eyjafrétta hafði orð á því að hann hafi ekki áður séð hvítan regnboga þegar hann sendi myndirnar á ritstjórn Eyjafrétta.

Guðrún Nína Petersen skrifaði um slíka regnboga á vef Veðurstofunnar árið 2021. Þar segir hún að þokubogi, eða hvítur regnbogi, líkist hefðbundnum regnboga að því leyti að hann sést við ljósbrot sólgeislunar í dropum í lofti, en í mun minni dropum.

Hefðbundinn regnbogi sést þegar regn fellur en að baki áhorfanda skín sólin (sjá einnig aðra fróðleiksgrein um regnboga).

Líkt og fyrir regnboga þarf sólin að skína í bak áhorfandans svo þokubogi myndist en í stað þess að ljósbrotið sé í regndropum, og litir regnbogans birtist áhorfanda, verður ljósbrotið í skýjadropum.

Þá segir í greininni að þoka sé ekkert annað en ský við yfirborð og er samsett úr örsmáum vatnsdropum, skýjadropum sem eru 10–1000 sinnum minni er regndropar. Meðalradíus slíkra dropa er um 0,1 mm, en getur verið allt frá 0,01 til 0,1 mm. Skýjadropar eru svo léttir að þeir svífa en þegar droparnir eru nógu þungir til að falla kallast þeir regndropar, og minnstu regndroparnir súldardropar.

Við ljósbrot í skýjadropum, á sama hátt og í regndropum, endurkastast ljósið í átt að áhorfandanum frá aftara yfirborði dropans, en dreifing ljósgeislans er ríkjandi þáttur. Það þýðir að endurkastaði geislinn er breiðari en frá regndropa og litirnir smyrjast út sem gefur hvítan eða mjög litlítinn þokuboga með daufum rauðum lit yst og bláum innst, eins og má til dæmis sjá á myndinni hér að neðan.

Alla grein Guðrúnar má lesa hér. Fleiri myndir frá í dag má sjá hér að neðan.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst