Íbúðabyggð við malarvöll og Löngulág – Skipulagslýsing

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 24. október 2023 að auglýsa skipulags- og matslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 og nýtt deiliskipulag fyrir íbúðabyggð við malarvöll og Löngulág.

Skipulagslýsingin gerir grein fyrir helstu markmiðum og áherslum við skipulag svæðisins. Fyrirhugaðar breytingar á ákvæðum aðalskipulags fyrir landnotkunarreit íbúðabyggðar (ÍB-5) fela í sér að hámarks fjöldi íbúða er aukinn frá 40 í allt að 100 íbúðir og hámarkshæð er breytt frá að vera 2 hæðir í 3 hæðir með afmörkuðum reitum sem geta verið allt að 4 hæðir. Lögð er áhersla á að varðveita grænt útivistarsvæði í Löngulág.

SKIPULAGSLÝSING

Gert er ráð fyrir leikskóla á landnotkunarreit Samfélagsþjónustu (S-2) og munu skipulagsmörk milli landnotkunarreita ÍB-5 og S-2 því líklega taka breytingum. Mikilvæg veitumannvirki eru á svæðinu og tekið er tillit til framtíðarþróun þeirra.

Gerð er grein fyrir helstu umfjöllunarþáttum deiliskipulags og áherslum umhverfismats.

Skipulagsgögnin eru til sýnis í Ráðhúsi Vestmannaeyja að Kirkjuvegi 50, frá og með 27. október 2023 til 20. nóvember 2023 og má einnig finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveitafélagsins.

Umsagnir og ábendingar skulu berast skriflega til og með 20. nóvember 2023 á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is eða í Ráðhúsinu að Kirkjuvegi 50.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn komu til baka og náðu í stig gegn ÍA
Óskuðu eftir Baldri – fengu neitun
Petar Jokanovic áfram í herbúðum ÍBV
Rjúfum vítahringinn: Hringferð SA í Akóges-salnum
Þakklæti efst í huga
Kvennakórinn heldur vortónleika
Mikilvæg stig í húfi þegar ÍBV mætir ÍA
Fyrsta tap ÍBV í sumar kom gegn FH
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.