Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum – desember 2020
Íbúum í Vestmannaeyjum fækkaði um 26 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. desember 2020. Úr 4358 í 4332 eða um 0,6%. Íbúar í Vestmannaeyjum voru 4304, 1. desember 2018. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands.
Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðið ár eða um 14,0% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 12 íbúa eða úr 86 í 98 íbúa. Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Svalbarðsstrandarhreppur um 9,8% og Reykhólahreppi um 9,2%. Þá fækkaði íbúum í 24 sveitarfélagi af 69 á ofangreindu tímabili.
Fækkun í einum landshluta
Lítilsháttar fækkun varð á Vestfjörðum. Fækkunin á Vestfjörðum nam 0,3% eða um 18 íbúa. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 1,4% eða um 3.352 íbúa. Mest hlutfallsleg fjölgun var á Suðurlandi eða um 1,8% eða um 54 íbúða.
2020-12-02
Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum – desember 2020
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.