ÍBV-dagur þann 1. maí
_DSC0055
Íþróttasvæðið við Hástein. Eyjar.net/Óskar Pétur

Það verður svo sannarlega mikið um að vera hjá ÍBV á morgun, 1. maí.

4.flokkur kvenna í knattspyrnu hefur daginn á Þórsvelli með tveimur leikjum gegn Val. 4.flokkur karla í handbolta tekur svo boltann með tveimur leikjum uppi í íþróttamiðstöð gegn Gróttu og Haukum.

Stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu hefja svo leik gegn Aftureldingu kl 14:00 á Hásteinsvelli. Mikilvægur leikur í Mjólkurbikarnum. Í hálfleik verður boðið upp á grillaðar pylsur og ís fyrir börnin.

Síðast en ekki síst eru það svo strákarnir okkar í meistaraflokki karla sem standa í ströngu í úrslitakeppni. Fjórði leikur í undanúrslitum gegn FH kl 17:00. Upphitun hefst kl 15:30. Hamborgarar verða til sölu. Aðalstjórn býður upp á fría barnapössun.

Nú er lag að mæta og styðja fólkið okkar. Gerum ÍBV-dag úr þessu. Mætum á völlinn og höfum gaman, segir í tilkynningu frá félaginu.

ÍBV-Dagur 24

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.