ÍBV náði í stig á útivelli gegn toppliði Víkings R.
Úr leik ÍBV og Fram á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og topplið Víkings Reykjavík mættust í 18. umferð Bestu deildar karla í Víkinni í kvöld. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli.

Eyjamenn byrjuðu leikinn frábærlega og komust yfir eftir aðeins tvær mínútur þegar Sesar Örn Harðarson skoraði eftir sendingu frá Róberti Elís Hlynssyni. Víkingur jafnaði leikinn undir lok fyrri hálfleiks með skallamarki frá Daða Berg Jónssyni. Staðan 1-1 í hálfleik. 

Víkingar byrjuðu síðari hálfleikinn betur og náðu forystunni á upphafsmínútunum. Gylfi Þór Sigurðsson laumaði þá boltanum á Svein Margeir Hauksson, inn á teig Eyjamanna, sem skoraði af öryggi. Viggó Valgeirsson og Omar Sowe fengu báðir góð færi til að jafna leikinn fyrir ÍBV stuttu síðar en tókst ekki að stýra boltanum á markið.

Undir lok leiks fengu Eyjamenn vítaspyrnu þegar Sveinn Gísli Þorkelsson sparkaði í höfuðið á Mathias Edeland þegar hann var við það að skalla boltann, inn á teig Víkinga. Vicente Valor steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Lokatölur leiksins 2-2.

Eyjamenn eru með 17 stig í níunda sæti deildarinnar á meðan Víkingur R. er á toppnum með 45 stig.

18. umferð Bestu deildar karla

  • Víkingur R. 2 – 2 ÍBV

0-1 Sesar Örn Harðarson (‘2 )

1-1 Daði Berg Jónsson (’43 )

2-1 Sveinn Margeir Hauksson (’47 )

2-2 Vicente Rafael Valor Martínez (’89 , víti)

  • ÍA 2 – 0 Þór
  • Stjarnan 1 – 0 Keflavík
  • KA 0 – 1 FH
  • Breiðablik 1 – 3 Valur 
  • Mánudagur 10. ágúst 19:15 Fram – KR

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.