ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Úr leik ÍBV og KR. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í fótbolta tapaði gegn Fram í fjórðu umferð Bestu deildar karla á Lambhagavellinum í kvöld. Leiknum lauk með 5-1 sigri Framara.

Framarar byrjuðu leikinn mun betur og komust í 1-0 eftir ellefu mínútur þegar Atli Þór Jónasson setti boltann í autt markið eftir mikinn klaufagang í vörn Eyjamanna. Atli Þór tvöfaldaði forystu Framara á 32. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi, eftir sendingu Fred Saraiva. Staðan 2-0 í hálfleik. 

Þorri Stefán Þorbjörnsson kom Fram í 3-0 þegar fjórar mínútur voru liðnar af síðari hálfleik, eftir misheppnaða hreinsun í vörn ÍBV. Róbert Elís Hlynsson minnkaði muninn fyrir Eyjamenn með stórglæsilegu marki beint út aukaspyrnu á 72. mínútu. Framarar voru hins vegar ekki hættir og bættu tveimur mörkum við fyrir leikslok. Kyle Mclagan skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf og kom Fram í 4-1 þegar stundarfjórðungur var eftir. Það var svo Kristófer Konráðsson sem skoraði fimmta mark Framara undir lok leiks, með góðu skoti úr teignum. Lokatölur leiksins 5-1. 

Eyjamenn eru eftir leikinn á botni deildarinnar með eitt stig. Fram er í fimmta sæti með sjö stig. Tveimur leikjum í umferðinni er lokið en Keflavík sigraði KA á Akureyri, 1-2 í gær og KR sigraði FH á Meistaravöllum, 4-2. Umferðin klárast í kvöld.

ÍBV tekur næst á móti Breiðablik, á Hásteinsvelli, sunnudaginn 3. maí kl. 18:00.

Fram 5-1 ÍBV

1-0 Atli Þór Jónasson (’11)

2-0 Atli Þór Jónasson (’32)

3-0 Þorri Stefán Þorbjörnsson (’49)

3-1 Róbert Elís Hlynsson (’72)

4-1 Kyle Douglas Mclagan (’76)

5-1 Kristófer Konráðsson (’88)

 

Nýjustu fréttir

Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.