ÍBV tekur á móti Víkingi R. í dag
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Í dag mætast ÍBV og Víkingur R. í Bestu deild kvenna á Hásteinsvelli. Bæði lið hafa byrjað tímabilið af krafti og má búast við spennandi viðureign.

Bæði lið fóru með sigur af hólmi í sínum fyrsta leik – og það í markaleikjum. ÍBV hóf tímabilið með 4–3 sigri á Fram á Lambhagavelli, þar sem sóknarleikur liðsins skilaði sér vel. Á sama tíma vann Víkingur R. 2–1 sigur á Stjörnunni á Víkingsvelli í jöfnum og spennandi leik.

Fyrsti heimaleikur ÍBV í sumar

Leikurinn í dag er fyrsti heimaleikur ÍBV á tímabilinu og því mikilvægt að nýta heimavöllinn. Liðið sýndi mikinn sóknarkraft í fyrsta leik en fær nú sterkan mótherja í heimsókn. Víkingur R. hefur einnig sýnt að liðið er vel skipulagt og erfitt viðureignar, svo ljóst er að hart verður barist um stigin á Hásteinsvelli. Leikurinn hefst klukkan 13:00 í dag.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.