Ísland á filmu

Kvikmyndasafn Íslands hefur opnað nýjan vef undir yfirskriftinni Ísland á filmu. Tilgangur Íslands á filmu er að opna almenningi sýn inn í fágætan safnkost Kvikmyndasafns Íslands. Þarna er að finna mikinn fróðleik um verklag í landbúnaði og sjávarháttum auk ómetanlegra myndskeiða frá einhverjum merkustu atburðum Íslandssögunnar.
Á vefnum www.islandafilmu.is er hægt að skoða myndefni úr fórum Kvikmyndasafns Íslands, allt frá árinu 1906. Á vefnum verður fyrst um sinn hægt að nálgast hátt í 300 myndir og myndskeið aðgengileg víðs vegar að á landinu. Smám saman verður svo bætt á vefinn eftir því sem stafvæðingu efnis vindur fram.

Á islandafilmu.is geta notendur valið sér staðsetningu og smellt á hana til að skoða myndskeið frá umræddum stað. Einnig er hægt að velja myndbrotin úr efnislista.

Stutt lýsing fylgir hverju myndbroti en notendum gefst tækifæri á að setja inn athugasemdir eða ábendingar. Þannig vonar Kvikmyndasafnið að þekking almennings hvað varðar staði, fólk eða annað nýtist safninu til frekari efnisgreiningar sem vert er að varðveita og miðla. Notendum gefst jafnframt kostur á að deila myndunum á samfélagsmiðlum, s.s. Facebook.

Fágætir gullmolar gerðir aðgengilegir
Þær myndir sem birtast nú í fyrsta sinn á vefnum eru af ýmsu tagi. Uppistaðan er heimildamyndir sem gerðar vorum um miðbik 20. aldar af frumkvöðlum kvikmyndagerðar á Íslandi og má þar nefna Ósvald Knudsen, Óskar Gíslason, Ásgeir Long, Sigurð Guðmundsson ljósmyndara og fleiri. Þarna má finna ómetanlega gullmola sem hingað til hafa eingöngu hafa verið til á filmu en efnið hefur nú verið stafvætt til að opna almenningi aðgengi að vefnum. Elsta myndin, Slökkviliðsæfing, er frá árinu 1906 og er líklega elsta myndin sem hefur verið tekin upp hér á landi. Það var Þóra Höberg Petersen tengdadóttir Bíópetersens gamla sem fann frummyndina í Kaupmannahöfn og var hún var afhent Kvikmyndasafni Íslands árið 1982.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.