Jól í skókassa hefst að nýju

Jól í skókassa, verkefni KFUM og KFUK á Íslandi, sem hefur hlotið mikinn stuðning og notið mikillar velgengni undanfarin ár er aftur farið af stað.

Verkefnið snýst um að setja litlar og einfaldar gjafir í skókassa sem síðan eru sendir til munaðarlausra og fátækra barna í Úkraínu. Líkt og við þekkjum öll hefur neyð þessa hóps aðeins aukist með stríðinu sem nú geisar í Úkraínu.

Tekið er á móti kössum í Landakirkju en opið er alla virka daga milli kl. 9:00 og fram til 15:00. Síðasti skiladagur skókassa í Vestmannaeyjum er föstudagurinn 3. nóvember.

Mikilvægt er að fara vel eftir leiðbeiningum varðandi hvað má fara í kassana og hvernig ganga eigi frá þeim. Allar upplýsingar um slíkt ásamt prentefni til merkinga er að finna á heimasíðu verkefnisins kfum.is/skokassar.

Nálgast má skókassa í Sölku og Flamingo.

Nýjustu fréttir

Fleiri sóttu um iðnnám en komust að í haust
Myndband sýnir varhugaverðar aðstæður við Ofanleitishamar
Styrkleikarnir snúa aftur í einfaldara formi
Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega við Ofanleitishamar
ESB setur hagsmuni Íslands ekki í fyrsta sæti
Leitað að nýju hundasvæði
Suðurland á mikið undir
Íslenskir diplómatar binda ekki Evrópudómstólinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.