Jón Ari og fjölskylda una hag sínum vel í Kanada

Jón Ari Sigurjónsson er Eyjamaður sem lengst af hefur búið og starfað í Kanada þar sem hann býr nú með fjölskyldu sinni. Hann er fæddur á Strandbergi í Vestmannaeyjum árið 1952 og ólst svo upp á Hólagötu 29 sem foreldrar hans byggðu. Foreldrar hans eru Sigurjón Jónsson, símritari í Eyjum sem fór til Loftleiða sem loftsiglingafræðingur og Ragnheiður Sigurðardóttir frá Stakkagerði. Systkini hans eru Sigurjón Ragnar, Frosti, Íris Ólöf og Matthildur sem er látin.  Þegar Sigurjón byrjaði hjá Loftleiðum flutti fjölskyldan til Reykjavíkur.  Jón Ari býr á Vancouvereyju í Bresku Kolombíu í Kanada. Kona hans er Sigríður Oddný Gunnlaugsdóttir.

„Við eigum tvær dætur, Hjördísi sem er fædd 1974 og Ingileif sem fæddist ári síðar. Við eigum tvær afastelpur ytra og ég á aðrar tvær  sem búa í Eyjum og ásamt einsárs langafastrák. Hjördís og Ingileif  búa hér í Kanada. Önnur á neðri hæðinni og sú eldri í næstu götu. Fjölskyldan talar alltaf saman á íslensku. Við horfum á íslenskt sjónvarp og hlustum á íslenskt útvarp flesta daga. Hjá okkur er þetta eins og að vera í sumarbústað á Íslandi nema að allir tala ensku fyrir utan húsið,“ segir Jón Ari sem minnist góðra daga í Eyjum og lumar á nokkrum sögum frá þjóðhátíðum fyrri ára. Hann heimsækir heimaslóðirnar reglulega og eyddi tíu dögum í Eyjum í vor.

Mynd,

Jón Ari, móðir hans og Sigga þegar Jón Ari varð fimmtugur.

Viðtalið í heild er í Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.