Í dag var tilkynnt um val á bæjarlistamanni Vestmannaeyja fyrir þetta ár. Jónína Björk Hjörleifsdóttir eða Jóný eins og hún er ávallt kölluð varð fyrir valinu í ár.
Það var Njáll Ragnarsson formaður bæjarráðs sem kynnti valið og skólalúðrasveit Vestmannaeyja lék nokkur létt og skemmtileg lög, segir í umfjöllun á vef Vestmannaeyjabæjar. Þar segir jafnframt að Sigurhanna Friðþórsdóttir hafi kynnt Menningarstefnu Vestmannaeyjabæjar og þær Caritas Rós Tinnudóttir og Kolbrá Njálsdóttur sem tóku þátt í upplestrarkeppninni fyrir hönd GRV lásu ljóð.
Jónína Björk eða Jóný eins og hún er alltaf kölluð er fædd 24. maí 1966 og verður því sextug á árinu. Jóný er dóttir hjónanna Ingu Jóhönnu Halldórsdóttur og Hjörleifs Guðnasonar múrara og er yngst 7 systkina.
Jóný hefur um árabil glatt bæjarbúa með list sinni hvort sem um er að ræða myndlist, mósaík eða keramík. Hún hefur verið einn af drifkröftunum í Lista- og Menningarfélagi Vestmannaeyja en félagið er með aðstöðu í Hvíta húsinu við Strandveg.
Í viðtali við Fréttir frá 2015 lýsir Jóný því að í kjölfar þess að faðir hennar veiktist árið 1998 hafi hún farið að fikta við að teikna, rissa og krassa eins og hún sjálf orðaði það. Listin átti vel við hana og í kjölfarið skráði hún sig á myndlistarnámskeið hjá Steinunni Einarsdóttur um aldamótin og í framhaldinu í fjarnám á listnámsbraut í Borgarholtsskóla.
Fyrstu einkasýningu sína hélt Jóný þann 5. júní 2015 í Einarsstofu sem bar einmitt upp á 90 ára afmæli föður hennar. Á sýningunni voru aðallega olíuverk, kolaverk og mósaík og fékk sýningin góðar undirtektir.
Jóný hefur áður lýst því að á sýningunni hafi listspekúlantar komið að henni og ráðlagt að leggja áherslu á eitt listform. Það hefur hún sannarlega ekki gert og síðar hefur m.a. bæst við glermósaík við fjölbreytt listform hennar.
Jóný hefur ávallt tekið virkan þátt í starfi lista og menningarfélagsins og er boðin og búin við að taka á móti nýjum listamönnum og taka virkan þátt í þeim verkefnum sem í gangi hjá félaginu hverju sinni.
Þegar Jóný og félagar hjá Lista og menningarfélagið sótti um styrk í „Viltu hafa áhrif“ fyrir nokkrum árum var styrkurinn ætlaður í listsköpun ungs fólks enda hefur Jóný talað fyrir aukinni afþreyingu á sviði lista fyrir unga fólkið okkar.
Jóný hefur reglulega haldið sýningar og tekið þátt í samsýningum og vinnur að miklum móð að listsköpun sinni.
Ekki einungis er Jóný með hugann við eigin listsköpun heldur er henni annt um það að sem flestir geti notið sín í listinni og hefur veitt hvatningu þeim sem starfa með henni sem og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref.
Jóný er afskaplega vel að útnefningunni komin og óskum við henni til hamingju! Fleiri myndir frá dagskrá dagsins má sjá hér að neðan.