KFS kom í veg fyrir að Léttir kæmist í úrslitakeppni 3. deildar með því að gera jafntefli gegn þeim á Hásteinsvelli í dag. Lokatölur urðu 4:4 en þrátt fyrir að Eyjamenn hafi teflt fram vængbrotnu liði, þá voru þeir síst lakara liðið. En átta mörk og í það minnsta tvö sláarskot héltu áhorfendum á Hásteinsvelli uppteknum í annars opnum og skemmtilegum leik.