Nýr leitarhundur afhentur í dag
Kiwanisklúbburinn Helgafell afhenti lögreglunni í Vestmannaeyjum nýjan leitarhund í dag en hundurinn er gjöf Kiwanismanna til lögreglunnar. Lögreglan fékk hundinn formlega afhentan á lögreglustöðinni í dag og lýsti yfir gríðarlegu þakklæti til Kiwanismanna og velunnara.
Nýi leitarhundurinn Rökkvi er þriðji hundurinn sem Kiwanis gefur lögreglunni og hafa þeir einkum verið notaðir til fíkniefnaleitar. Til stendur að þjálfa Rökkva einnig upp í sporaleit þannig að hundurinn nýtist einnig til leitar að fólki. Rökkvi er tæplega árs gamall labrador retriever.
Leitarhundur er eitt mikilvægasta tækið í baráttunni við fíkniefni og er lögreglan sannfærð um að hundurinn muni nýtast samfélaginu öllu en hinir tveir hundarnir sem hafa verið í þjónustu lögreglunnar hafa heldur betur sannað gildi sitt. Lögregla telur leitarhund mikilvægt tæki bæði við forvarnir og að upplýsa brot og það sem er mest um vert að koma fíkniefnum úr umferð.
Kiwanisklúbbnum færum við bestu þakkir frá lögreglu og samfélaginu öllu segir á facebook síðu Lögreglunar í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.