Kjaraviðræðum miðar vel áfram
Vel miðar áfram í kjaraviðræðum sjó­manna og Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. �?etta seg­ir Heiðrún Lind Marteins­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri SFS, en fundað var í deil­unni í dag. Fundað verður aft­ur á mánu­dag í húsa­kynn­um rík­is­sátta­semj­ara klukk­an 13 og seg­ir Heiðrún að báðar hliðar muni vinna smá heima­vinnu fyr­ir fund mánu­dags­ins. Mbl.is greinir frá.
�??�?að er ekki beint búið að af­greiða nein atriði. �?egar búið er að fara yfir heild­ar­kröf­urn­ar þá er hægt að taka af­stöðu til ein­stakra krafna og þá pakk­ans í heild sinni, en það er ekki form­lega búið að taka af­stöðu til neinna krafna á þessu stigi,�?? seg­ir Heiðrún um stöðuna. Spurð hvort það sé farið að sjá fyr­ir end­ann á verk­fall­inu kveðst hún vona það, en það sé þó ómögu­legt að segja til um það.
�??�?g held að menn séu alltaf að reyna að hugsa í lausn­um,�?? seg­ir Heiðrún spurð út í þenn­an góða gang viðræðnanna núna, og hvers vegna bet­ur gangi nú en fyr­ir ára­mót. �??�?að ligg­ur fyr­ir að sjó­menn eru bún­ir að fella samn­ing í tvígang. �?að er alltaf verið að reyna að finna samn­ing sem báðir aðilar geta við unað.�??
Ekki hef­ur verið rætt til hversu langs tíma verður samið að sögn Heiðrún­ar.

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun fyrir allt landið
Ljósmyndakeppni fyrir börn og ungmenni
Íþróttamaður mánaðarins – Birna María
Þurfa Eyjamenn að taka málin í sínar hendur?
Framtíðarsýn – tökum samtalið
Vestmannaeyjar úti í kuldanum í fjárlagafrumvarpi 2026
Hátt í 50 metrar á Stórhöfða
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.