Kjarnaborinn laus – borun hafin á ný
Ljósmynd/Eyjagöng.

Kjarnaborinn sem festist í hörðu bergi við framkvæmdir fyrir fyrirtækið Eyjagöng í liðinni viku hefur nú verið losaður og vinna komin aftur á fullt skrið.

Eftir krefjandi daga þar sem borinn sat fastur í holu í afar hörðu bergi tókst loks að ná honum upp á föstudagsmorgun. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdaraðilum var það öflug loftpressa sem skipti sköpum við losunina og braut á bak aftur mótstöðuna. Í kjölfarið var unnið hratt að næstu skrefum og var steypt í holuna síðar sama dag. Steypan þurfti að fá tíma til að harðna áður en hægt væri að halda áfram borun.

Gert var ráð fyrir að borun hæfist að nýju síðdegis í gær, laugardag og samkvæmt nýjustu upplýsingum er vinna nú hafin á ný í sömu holu. Þessi þróun er mikið fagnaðarefni fyrir verkefnið eftir þær tafir sem urðu og gefur góð fyrirheit um framhald framkvæmdanna.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.