Kjörstaður í Vestmannaeyjum við forsetakosningar er í Agókes
25. júní næstkomandi verða forsetakosningar á Íslandi. Kjörfundur hefst kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00 að kveldi sama dags. Kjörstaður í Vestmannaeyjum verður í Akóges við Hilmisgötu 15 og verður bænum skipt þannig í tvær kjördeildir:
Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 4. júní 2016 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra sem eru óstaðsettir í hús og þeirra, sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.
Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 4. júní 2016 við Hátún til og með Vesturvegi, auk þeirra, sem búa að Hraunbúðum og húsum, er bera bæjarnöfn.
Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini, getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstjórn verður til húsa á kjörstað í Akóges á kjördegi.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.