Konurnar taka yfir í Eyjum
Matey 24 Gestakokkar
Gestakokkarnir á Matey í ár. Adriana Solis Cavita,Renata Zalles og Rosie May Maguire. Ljósmyndir/aðsendar.

Í ár verða alþjóðlegir kvenleiðtogar í matreiðslu í hlutverki gestakokka á Matey. Gestakokkarnir koma víða að. Adriana Solis Cavita – kemur frá Mexíkó og verður á veitingastaðnum Gott. Rosie May Maguire – kemur frá Bretlandi og verður á veitingastaðnum  Slippnum. Renata Zalles –  kemur frá Bólivíu og verður á veitingastaðnum Einsa kalda.

Veitingastaðir, fiskframleiðendur og þjónustuaðilar í  sjávarsamfélaginu Vestmannaeyjum taka höndum saman og vekja athygli á menningararfleiðinni og  fjölbreytta fiskinum sem framleiddur er í Eyjum og bjóða upp margvíslega töfrandi rétti úr frábæru hráefni úr Eyjum. Samhliða því að boðið verður upp á frábæran mat úr staðbundnu hráefni úr Eyjum á veitingastöðum bæjarins þá verður boðið upp á áhugaverða viðburði á hátíðinni.

Fyrirtæki í sjávarútvegnum og tengdum greinum gefa gestum tækifæri að fá innsýn í starfsemina og kynnast hvernig bláa hagkerfið tengist saman þannig að til verður dýrindis matur á diskum gesta sjávarréttahátíðarinnar á hinum fjölskrúðugu fjölskyldureknu veitingastöðum Vestmannaeyja.

Fjölmargar útfærslur af fiski veiddum í kringum Eyjarnar

Vestmannaeyjar eru einn aðal mataráfangastaður Íslands og þar eru nú fjöldi veitingastaða sem bjóða upp á staðbundna matargerð með staðbundnu hráefni.  Mataráfangastaðurinn Vestmannaeyjar voru tilnefndar til norrænu matarverðlaunanna Emblu 2021. Á hátíðinni kynnist fólk menningunni og sögu matarins með nokkru af besta matreiðslufólki Norðurlandanna.

Á hátíðinni verða í boði fjölmargar útfærslur af fiski veiddum í kringum Eyjarnar og framleiddum hjá hinum öflugu fiskvinnslum í Eyjum og matvælaframleiðendum eins og t.d. Ísfélaginu, VSV, Grími kokki,  Marhólmum og Iðunni Seafood.

Veitingastaðirnir í Eyjum Gott, Slippurinn, Einsi kaldi munu bjóða upp á margrétta sérseðla ásamt nokkrum af bestu matreiðslumönnum í heimi sem taka þátt í hátíðinni sem gestakokkar.  Á Næs, Tanganum, Kránni, Sælandi, Pítsugerðinni verða í boði sérréttir og Brothers Brewery bjóða upp á sérlagaðan bjór í tilefni hátíðarinnar.

Segja má að Vestmannaeyjar séu komnar á heimskort matgæðinga og öllum er boðið að koma og taka þátt í sjávarréttahátíðinni Matey sem haldin verður í þriðja skipti dagana 5.-7. september 2024.

Hér má bóka borð.

 

Nýjustu fréttir

Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.