Krefjandi aðstæður við borun
Borinn sem notaður er til verksins. Ljósmynd/eyjagong.is

Borunarvinna við Eyjagöng gekk ekki snurðulaust um síðustu helgi þegar kjarnabor festist í holu eftir að hafa farið í gegnum afar hart berg. Unnið er að því að leysa vandann og hefur viðbótartækjabúnaður verið fluttur til Eyja, að því er segir í frétt á vefnum Eyjagöng.is.

Atvikið átti sér stað síðdegis laugardaginn 25. apríl þegar borinn festist á um 66 metra dýpi. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdaraðilum hefur verið unnið markvisst að því að losa borinn síðan þá.

Til að bregðast við stöðunni var aukinn tækjabúnaður fluttur til Vestmannaeyja síðastliðinn þriðjudag til að styðja við losunaraðgerðir. Enn er unnið af fullum krafti að því að ná bornum upp og eru vonir bundnar við að það takist á næstunni.

Varaáætlun til skoðunar

Takist ekki að losa borinn með þeim búnaði sem nú er til staðar, er þegar unnið að undirbúningi varaáætlunar. Hún felur í sér að bora nýja holu og beita svokallaðri loftborun niður á sambærilegt dýpi, þannig að framgangur verkefnisins raskist sem minnst.

Í samtali við starfsmenn Ræktunarsambandsins kemur fram að slíkir hnökrar séu ekki óalgengir við framkvæmdir af þessu tagi.

„Þetta er hluti af ferlinu og ekki óeðlilegt að mæta áskorunum sem þessum. Verkefnin eru til þess að leysa þau og við höldum ótrauð áfram,“ segja þeir.

Frekari upplýsingar um gang mála verða birtar eftir því sem fram vindur, segir að endingu í fréttinni.

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.